Um okkur

Starfsmenn Talnabæjar búa yfir mikilli reynslu af bókhaldsstörfum jafnt sem ráðgjöf og áætlanagerð hvers konar. Menntunarstig starfsmanna fyritækisins er gott. Einnig hafa starfsmenn fyrirtækisins mikla reynslu bæði innan skattkerfisins og af endurskoðendastofnum sem nýtist mjög vel í starfi.

Eins og áður sagði er aðalstarfssvið fyrirtækisins bókhald, reikningsskil, framtalsaðstoð, kaupsamningar og önnur skjalagerð ásamt skyldri þjónustu.

Við kennum viðskiptavininum að nota bókhald sem stjórntæki í fyrirtækinu. Bókhaldið er fært reglulega og getur viðskiptavinurinn alltaf notað bókhaldið til að sjá rétta stöðu á viðskiptavinum,skuldastöðu fyrirtækisins og metið hagnað og tap tímabilsins.

Starfsmenn fyrirtækisins hafa þekkingu og reynslu á helstu bókhaldskerfum eins og DK, Tok, Navision, Netbókhaldi ofl.

Við aðstoðum einnig við kaup og sölu á fyrirtækjum og öðrum eignum, verðmat á fyrirtækjum og fasteignum og ráðgjöf og áætlanagerð hvers konar.

Markmið starfsmanna Talnabæjar er að þjónusta viðskiptavini sem best og veita hágæða þjónustu á sviði bókhalds og rekstrarráðgjafar.

 

Starfsmenn Talnabæjar eru:

Birna Kemp

Viðurkenndur bókari

Ragnar G. Þórðarson

Cand Oecon – Viðskiptafræðingur